- Forsíða
- Umsagnir viðskiptavina
Umsagnir

Starfsfólkið mitt var svooooo ánægt með námskeiðið. Þau með “tips-in” frá þér til að hjálpa sér í vinnu og hiklaust nýta sér þau ráð sem þeim var gefin. Ásta Mjöll Óskarsdóttir, Manager Front House, Airport Associates

Námskeiðið var algjörlega frábært og fór fram úr öllum mínum væntingum 🙂 Helga Björg Gísladóttir, mannauðsstjóri Perlunnar

Starfsfólkið á námskeiðinu, sem þú hélst fyrir okkur, töluðu öll um hvað þetta var skemmtilegt námskeið. Nálgunin kom þeim á óvart og nutu sín allir sem einn. Vel gert Margrét 😊 Jón. H. Baldvinsson, verslunarstjóri Útilíf

- Takk kærlega fyrir frábært námskeið. Ótrúlega skemmtilegt og allir mjög sáttir. Þetta var geggjað 🙂 Erla Guðmundsdóttir, Customer Support Team Lead, Rapyd

- Námskeiðin þín hafa vakið mann til umhugsunar um hvað maður gerir rétt og hvað má bæta. Ólöf Harðardóttir, Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála
- I am thoroughly enjoying everything about this course 😊 Erzsebet Iren Szucs
- Ég er þakklát fyrir öllu þau góðu hjálpartæki sem ég fékk. Takk fyrir mig ❤ Þórunn Íris Þórisdóttir
- Mjög áhugavert námskeið og vakti mann til sjálfskoðunar. Jóhanna Þorleifsdóttir
- Upplýsingar um rafræna netnámskeið þjónusta og árangursrík samskipti HÉR

- Hjartans þakkir fyrir frábæra handleiðslu og skemmtilegt námskeið. Halla Norland, Smith & Norland

- Okkar starfsfólk var ánægt með fyrirlesturinn. Örn Árnason var einlægur og persónulegur og auðvelt að tengja við hans reynsluheim og yfirfæra á starfsumhverfið hjá okkur. Ásta Bærings, mannauðsstjóri Þekkingar

Í frístundastarfi á Seltjarnarnesi starfa rúmlega 20 manns, flestir í hlutastarfi. Þriðjungur hópsins starfar sem stuðningur við grunnskólann fyrir hádegi og í frístund eftir hádegi. Aðrir starfsmenn eru flestir námsmenn og starfa í hlutastarfi með námi. Starfsmannavelta er lítil og andinn almennt góður. Undanfarna mánuði hefur starfsemi frístundar verið hólfaskipt vegna covid. Starfsmannahópurinn hefur því ekki haft tök á að hittast jafn mikið og fyrri ár. Til að efla liðsandann og þétta hópinn í þessum sérkennilegu aðstæðum fengum við ,,Gerum betur“ til að halda fyrirlestur um framkomu við viðskiptavini og hvert annað. Það er skemmst frá því að segja að námskeiðið sló alveg í gegn. Einn hafði meira að segja á orði ,,þetta er besta námskeið sem við höfum farið á“. Á námskeiðinu var mikil áhersla lögð á áhrif líkamstjáningu okkar á annað fólk og orðanotkun í samskiptum. Þegar þessi orð eru skrifuð eru liðnir tveir mánuðir frá því námskeiðið var haldið og varla líður sú vika að ekki sé vitnað í námskeiðið og hvað starfsmenn lærðu af því. Ég mæli heils hugar með námskeiði hjá Gerum betur fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja gera enn betur.
- mars 2021.
Hólmfríður Petersen, forstöðumaður frístundastarfs.

Virkilega gott og skýrt námskeið hjá Gerum betur. Ég lærði helling. Fannst frábært hvernig námskeiðið er sett upp með því að leyfa okkur að upplifa og skynja hvernig góð gestrisni er veitt og hvaða hlutir þurfa að vera á hreinu til þess að geta tekist rétt á málum sem koma upp. Takk fyrir mig kveðja Erla Sverrisdóttir.
Upplýsingar um námskeiðið HÉR

- Þessir pínulitlu molar sem koma í gegnum spurningarnar gáfu mér svo mikið! Námskeiðið virkilega ýtir við manni og hafa allir gott af því. Stefanía Hauksdóttir
- Við höfum sannarlega notið góðs af þessu námskeiði. Hrefna Sif Ármannsdóttir, forstöðumaður þjónustuborðs
- Mjög fræðandi og hnitmiðað námskeið! Berglind S. Jónsdóttir
- Fer í alla sálfræðilegu þættina sem nýtast! Jón Eiður Jónsson
- Mjög ánægð með námskeiðið – bæði gagnlegt og skemmtilegt. Mjög hjálplegt að hafa bókina til að rifja upp lykilþætti. Auður Gunnarsdóttir
- Mér fannst námskeiðið mjög gagnleg og skemmtileg. Eins var gott að vinna þau rafrænt og fá að velja þann tíma sem hentar. Kolbrún Sigmundsdóttir
- Þetta var ánægjulegt námskeið og rifjaði upp fyrir mér ýmislegt. Agnes Einarsdóttir
- Það er ekki daglegur viðburður að taka á móti erfiðum viðskiptavinum því þarf maður að rifja upp tæknina reglulega. Rafrænu bækurnar sem fylgja námskeiðunum eru mjög góðar. Hafdís Sigurðardóttir
- Fullt af góðum dæmum og upplýsingum í bókinni sem fylgir námskeiðinu sem nýtast mér í starfi og einnig í einkalífi. Takk fyrir mig. Sylwia Lawreszuk, þjónustufulltrúi/innheimtudeild, Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
- Mjög áhugavert námskeið og vakti mann til sjálfskoðunar. Jóhanna Þorleifsdóttir