- Home
- Testimonials
- Page 2
Umsagnir
- Námskeiðin þín hafa vakið mann til umhugsunar um hvað maður gerir rétt og hvað má bæta. Ólöf Harðardóttir, Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála
- I am thoroughly enjoying everything about this course 😊 Erzsebet Iren Szucs
- Ég er þakklát fyrir öllu þau góðu hjálpartæki sem ég fékk. Takk fyrir mig ❤ Þórunn Íris Þórisdóttir
- Mjög áhugavert námskeið og vakti mann til sjálfskoðunar. Jóhanna Þorleifsdóttir
- Upplýsingar um rafræna netnámskeið þjónusta og árangursrík samskipti HÉR
- Hjartans þakkir fyrir frábæra handleiðslu og skemmtilegt námskeið. Halla Norland, Smith & Norland
- Okkar starfsfólk var ánægt með fyrirlesturinn. Örn Árnason var einlægur og persónulegur og auðvelt að tengja við hans reynsluheim og yfirfæra á starfsumhverfið hjá okkur. Ásta Bærings, mannauðsstjóri Þekkingar
Í frístundastarfi á Seltjarnarnesi starfa rúmlega 20 manns, flestir í hlutastarfi. Þriðjungur hópsins starfar sem stuðningur við grunnskólann fyrir hádegi og í frístund eftir hádegi. Aðrir starfsmenn eru flestir námsmenn og starfa í hlutastarfi með námi. Starfsmannavelta er lítil og andinn almennt góður. Undanfarna mánuði hefur starfsemi frístundar verið hólfaskipt vegna covid. Starfsmannahópurinn hefur því ekki haft tök á að hittast jafn mikið og fyrri ár. Til að efla liðsandann og þétta hópinn í þessum sérkennilegu aðstæðum fengum við ,,Gerum betur“ til að halda fyrirlestur um framkomu við viðskiptavini og hvert annað. Það er skemmst frá því að segja að námskeiðið sló alveg í gegn. Einn hafði meira að segja á orði ,,þetta er besta námskeið sem við höfum farið á“. Á námskeiðinu var mikil áhersla lögð á áhrif líkamstjáningu okkar á annað fólk og orðanotkun í samskiptum. Þegar þessi orð eru skrifuð eru liðnir tveir mánuðir frá því námskeiðið var haldið og varla líður sú vika að ekki sé vitnað í námskeiðið og hvað starfsmenn lærðu af því. Ég mæli heils hugar með námskeiði hjá Gerum betur fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja gera enn betur. Hólmfríður Petersen, forstöðumaður frístundastarfs.
Virkilega gott og skýrt námskeið hjá Gerum betur. Ég lærði helling. Fannst frábært hvernig námskeiðið er sett upp með því að leyfa okkur að upplifa og skynja hvernig góð gestrisni er veitt og hvaða hlutir þurfa að vera á hreinu til þess að geta tekist rétt á málum sem koma upp. Takk fyrir mig kveðja Erla Sverrisdóttir.
Upplýsingar um námskeiðið HÉR
- Ég er ánægð með hvað þetta námskeið er að gera sig vel. Takk enn og aftur. Helena Hermundardóttir, eigandi og ræktunarstjóri Friðheima
- Nánar um rafræna netnámskeiðið Kitchen crimes HÉR
- Ég er ánægð með hvað þetta námskeið er að gera sig vel. Takk enn og aftur. Helena Hermundardóttir, eigandi og ræktunarstjóri Friðheima
- Nánar um rafræna netnámskeiðið Food allergy HÉR
The participants are now looking forward to the next course. They can hardly wait 🙂 Charo Celeste Elizalde, head of housekeeping at Hótel Klettur
Takk kærlega fyrir áhugaverðan fyrirlestur um menningarlæsi. Starfsfólkið sagði námskeiðið mjög lifandi og skemmtilegt. Einar Sigurðsson, Mountaineers of Iceland
Þetta fannst mér mjög skemmtilegt námskeið og ég sem hef unnið við að þjónusta erlenda gesti í fjöldamörg ár, lærið mikið af þessu námskeiði. Mæli með þessu við alla sem eru í þjónustu. Agnes Einarsdóttir
Þetta var frábært námskeið. Ég get sagt með fullu sjálfstrausti að þetta mun hjálpa mér og vonandi gleðja sem flesta kúnna í framtíðinni 🙂