Rafræn námskeið – eins og einkakennari
Rafrænu netnámskeið Gerum betur virka í tölvu og snjalltækjum og innihalda:
1. klst af fróðleiksmolum sem þú hámar í þig með því að horfa á íslensk myndbönd, leysa verkefni og svara gagnvirkum spurningum rafrænt.
Íslenska rafbók um þjálfunarefnið: Þú notar bókina til að lesa þig betur til um þau atriði sem þú vilt bæta þig í. Einnig getur þú flett upp í bókinni síðar til að rifja upp réttu taktana.
Verkefni til að meta hvar þú stendur fyrir og eftir námskeiðið.
Viðurkenningarskjal
Samtals: 10 klst.
Pantið námskeiðið með því að senda upplýsingar um nafn og kt. á gerumbetur@gerumbetur.is eða s. 8998264.
Námskeiðið er einnig hægt að fá í hús til ykkar.
Ýmis stéttarfélög styrkja námskeiðið um allt að 90% af kostnaði. Upplýsingar t.d. á www.attin.is
Ávinningurinn af rafrænum námskeiðum
Opin 24/7
Það er oft erfitt fyrir fólk að komast á hefðbundin námskeið. Það er nú þannig með fólk sem starfar í þjónustu, sem er alls um 80% þjóðarinnar, að það á ekki alltaf gott með að komast frá því þá þarf einhver annar að koma í staðinn. Þú gengur hinsvegar að stafrænu námskeiðunum hvenær sem laus stund gefst, án þess að það þurfi að rekast á eitthvað annað í dagsins önn, í starfi eða einkalífi. Þess vegna hafa mörg hundruð manns nýtt sér þessi námskeið á síðastliðnum sjö árum.
Lærir hratt
Þjálfunarefnið er samanþjappað í stafrænni þjálfun og hver og einn getur lært á sínum hraða. Þau auka fagmennsku og öryggi starfsfólks í starfi og minnka þar af leiðandi starfsmannaveltu.
Lækkar þjálfunarkostnað og umhverfisvæn
Það er tímafrekt fyrir starfsfólk að komast á námskeið vegna vinnu eða ferðalaga. Það þarf heldur ekki starfsmann á staðnum til að halda námskeið stafrænu námskieðin.
Skilvirk og samræmd þjálfun
Það fara allir í gegnum samskonar þjálfun. Námskeiðin eru líka gagnvirk þannig að alltaf kemur skýring/svar um hvort lausn er rétt eða röng og þannig bætist stöðugt í þekkingarbankann.
Mælanlegur árangur
Hægt að sjá nákvæmlega árangur fyrir hvert einasta námskeið og einstakling sem gefur vísbendingu um stöðu hvers og eins.
Rafbækur
Með mörgum af námskeiðunum fylgja líka vandaðar rafbækur frá Gerum betur ehf. sem má nota til að rifja upp og viðhalda þekkingunni.
Endurtekningin er móðir allra dyggða
Það má taka námskeiðin aftur og aftur þar til þú ert búinn að „mastera“ efnið. Þannig fæst stöðug endurgjöf og við blasir hve mikið lærðist og eins hvar má gera betur þegar farin er önnur yfirferð. Með þessu móti má nýta námskeiðið í allar glufurnar sem eiga til að myndast í dagsins önn hjá okkur öllum. Námskeið á staðnum er hinsvegar yfirleitt aðeins haldið einu sinni.
Auðvelt að uppfæra nýjustu upplýsingarnar
Hið síbreytilega og alþjóðavædda umhverfi sem við lifum og hrærumst í nú til dags er þannig að við þurfum alltaf að vera að bæta við okkur nýrri þekkingu. Stafrænu námskeiðin gefa fólki betri kost á að hafa alltaf aðgang að leiðum til að efla þekkingu sína og fá aðgang að nýjustu upplýsingum því auðvelt er að uppfæra þær.