Námskeiðið Topp símaþjónusta fjallar um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru m.a. gagnleg ráð til að stýra og stytta samtöl með markvissri spurningatækni. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma. Fyrirlestrar eru stuttir, sýnd myndbönd, notaðar gagnvirkar umræður og fjölbreyttar skapandi aðferðir til að virkja þátttakendur. Hægt er að útbúa leiðbeiningar/ ferla/ gátlista eða yfirfara gögn sem eru til.
Markmið:
- Stýra og stytta samtöl.
- Þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.
- Læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.
- Efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Panta námskeið eða fá nánari upplýsingar: gerumbetur@gerumbetur.is eða 8998264
Námskeiðið er einnig í boði sem vefnámskeið/rafræn þjálfun.
Hægt er að fá bókina Topp símaþjónusta (2021) á rafrænu formi fyrir þátttakendur á námskeiðinu.