Gerum betur ráðgjöf

Höfum mikla reynslu ráðgjöf hjá okkur. Sem dæmi var eitt af fyrstu verkefnum okkar fyrir tæpum tveimur áratugum var að leiða þverfaglega mótun þjónustustefnu Reykjavíkurborgar sem lifir enn í dag.  Aðstoðum við gildavinnu, þjónustumarkmið og -staðla, nýliðaþjálfun, ferla og verklýsingar, gátlista fyrir hulduheimsóknir, starfsmannahandbækur, starfsmannahandbækur, greinum fræðsluþarfir og höldum utan um fræðsluinnleiðingu o.fl.

Samstarf

Þegar starfsfólk sest niður með okkur á námskeiðum eða til dæmis til að skapa  eigin fræðslu- og þjálfunaráætlun þá birtast oft aukreitis ýmis gullkorn sem bæta rekstur og samskipti innan fyrirtækisins. Við erum samstarfaðili Hæfniseturs ferðaþjónustunnar í að auka hæfni og fagmennsku starfsfólks í ferðaþjónustu. Sjá má pistil um ávinninginn af samstarfinu HÉR. Fræðslusjóðir stéttarfélaganna styrkja allt að 90% af kostnaði vegna námskeiða og kaupa á videóum okkar óháð starfsmanni.

Effective Communication Skills for Waiters

Þjálfun starfsfólks er tímafrek og kostnaðarsöm, því hefur gerumbetur.is hannað kennslumyndbandið Effective Communication Skills for Waiters  bæði á ensku og íslensku.  Í kennslumyndbandinu miðlar framreiðslumeistari í leiknum atriðum fróðleik, svo starfsfólk ykkar læri hraðar árangursríkar samskiptaleiðir í móttöku gesta, sölutækni, meðhöndlun kvartana o.fl. Þökk sé íslenskum fræðslusjóðum stéttarfélaga þá styrkja þeir fyrirtæki til að eignast myndbandið um 80-90% af kostnaði, óháð starfsmanni.

Dæmi um videó sem þið getið keypt og átt.

Námskeið lítil

Þið getið notað þau á t.d. starfsmannafundum eða fræðslupökkum og fengið allt að 90% endurgreitt af kostnaði frá fræðslusjóðum stéttarfélaga, óháð starfsmanni.

  • Þjónustuupplifun.
  • Sköpum ánægða viðskiptavini
  • Góð samskipti byrja hjá okkur sjálfum
  • Breytir raddbeiting merkingu orða?
  • Hlusta með augunum
  • Hrós er sólskin í orðum
  • Þjónustusímsvörun
  • Reiður viðskiptavinur
  • Gleymdur viðskiptavinur
  • Kvartandi viðskiptavinur

Ráðgjöf – Hótel Klettur

„Svona batterí eins og hótel er með rosalega marga þætti og það fyrsta sem hugsað er um hvað varðar þjálfun þá er talað um að þjálfa starfsfólkið sem er beint fyrir framan gesti. Það er bara einn smár partur af öllu þessu skrímsli. Þannig að öll þessi þjálfun sem við gefum öllum býr til þessa heild. Þú þarft að hafa alla með í þessu, ekki bara þá sem gestirnir eru að sjá. Þetta er eitthvað sem er algjört grundvallaratriði til þess að þetta virki og við erum að sjá þennan árangur með því að koma öllum í rétta þjálfun.“

Ráðgjöf – Inside the volcano

„Við fengum Gerum betur til að horfa á þjálfunarprógrammið okkar í heild. Við endurskoðuðum það og gerðum heilmiklar og mjög góðar breytingar á því.“

„Við endurskoðun á áætluninni þá hjálpaði Gerum betur við að svona opna augu okkar fyrir því að það er hægt að gera ýmsa hluti í fræðslu með öðrum hætti. Við sáum bara strax mun hvað bæði starfsfólkið og aðrir urðu miklu áhugasamari með að taka þátt og vera með á námskeiðunum.“