Fjallað er um alla helstu lykilþætti sem þarf að hafa í huga í tölvupóstsamskiptum. Einnig er fléttað inn umfjöllun um samskipti í gegnum netspjall.
Markmið:
- Spara tíma.
- Auka afköst.
- Efla rafræna þjónustu gagnvart viðskiptavinum og innandyra.
- Auka öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Námskeiðið inniheldur:
Rafrænt námskeið með fróðleiksmolum, leiknum íslenskum vídeóum, krossaspurningum og verkefnum. Lengd: ca. 1-2 klst.
Rafbókin 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum. Lestur rafbókar u.þ.b einn dagur (má lesa fyrir námskeið, síðar og nota til upprifjunar).
Gátlisti til að meta eigin tölvupóstsamskipti og annarra. Lengd: ca 30. mín.
Viðurkenningarskjal þegar lýkur námskeiði.
Heildarlengd ca. 10 klst. og má gera i nokkrum áföngum. Námskeiðið er opið í 3 vikur.
Pantið námskeiðið með því að senda upplýsingar um nafn og kt. á gerumbetur@gerumbetur.is eða s. 8998264.
Námskeiðið er einnig hægt að fá í hús til ykkar.
Ýmis stéttarfélög styrkja námskeiðið um allt að 90% af kostnaði. Upplýsingar t.d. á www.attin.is