Fjallað er um hvaða efnisþættir eru almennt grunnur að starfsmannahandbók og leiðarvísir að innra skipulagi. Þátttakendur geta komið með það efni sem er tiltækt og gæti nýst í handbókina svo sem stefnu og hlutverk fyrirtækis, siðareglur, þjónustu, samskipti, verklag, réttindi og skyldur, vinnuvernd o.fl. Fyrirlestrar eru stuttir, áhersla er lögð á gagnvirkar umræður, sýnd myndbönd um þjónustusamskipti og fjölbreyttar skapandi aðferðir til að virkja þátttakendur.
Markmið:
- Skapa fyrstu drög að eigin starfsmannahandbók.
- Skapa jákvæð tengsl við vinnustaðinn strax í upphafi.
- Stytta tímann sem samstarfsfólk og stjórnendur þurfa að verja til að upplýsa nýjan starfsmann um starfið.
- Minnka starfsmannaveltu.
Hótel Klettur segir hér frá reynslu sinni af þjálfun frá Gerum betur