Margir íslenskir vinnustaðir eru nú orðnir mjög alþjóðlegir. Námskeiðið fjallar því um þætti í menningu Íslendinga sem mikilvægt er fyrir erlent starfsfólk að skilja til að auka starfsánægju og afköst. Byggt er á rannsóknum sem fjalla um menningarmun á Íslendingum og þeim þjóðum sem vinna hjá viðkomandi fyrirtæki. Fyrirlestrar eru stuttir, áhersla er lögð á gagnvirkar umræður, sýnd myndbönd um þjónustusamskipti og fjölbreyttar skapandi aðferðir til að virkja þátttakendur.
Markmið:
- Efla skilning á menningu Íslendinga.
- Auka skilning á að menningarmunur getur haft áhrif á samstarf.
- Efla skilning á margbreytileika og minnka líkur á misskilningi .
- Styrkja liðsheildina, fagmennsku og öryggi í samskiptum.
Panta námskeið eða fá nánari upplýsingar: gerumbetur@gerumbetur.is eða 8998264
Hótel Klettur segir hér frá reynslu sinni af þjálfun frá Gerum betur