Námskeiðið Þjónusta og móttaka gesta fjallar um hvað viðskiptavinir meta þegar þeir ákvarða gæði þjónustu og hvernig má veita framúrskarandi þjónustu þegar tekið er á móti kvörtunum viðskiptavina. Fyrirlestrar eru stuttir, áhersla er lögð á gagnvirkar umræður, sýnd myndbönd um þjónustusamskipti og fjölbreyttar skapandi aðferðir til að virkja þátttakendur. Námskeiðið uppfyllir námskeiðslýsingu í gæðaviðmiði Vakans. Hægt er að útbúa leiðbeiningar/ ferla/ gátlista eða yfirfara gögn sem eru til um kvartanferil og þjónustusamskipti.
Markmið:
- Skilja lykilatriði í gæðaþjónustu.
- Efla árangursrík samskipti og trúverðugleika.
- Læra hagnýt ráð til að leysa á farsælan hátt úr kvörtunum.
- Styrkja liðsheildina, fagmennsku og öryggi í samskiptum.
Panta námskeið eða fá nánari upplýsingar: gerumbetur@gerumbetur.is eða 8998264
Hótel Klettur segir hér frá reynslu sinni af þjálfun frá Gerum betur