Fjallað er um lykilþætti í ráðgefandi sölu og þjónustu og af hverju ráðgefandi sala er í raun þjónusta. Einnig er farið yfir hvaða spurningar „veiða“ upplýsingar um hverju viðskiptavinur er að leita eftir. Fyrirlestrar eru stuttir, áhersla er lögð á gagnvirkar umræður, sýnd myndbönd um þjónustusamskipti og fjölbreyttar skapandi aðferðir til að virkja þátttakendur.
Markmið:
- Hafa á hreinu hver er munurinn á eiginleikum (features) og kostum (benefits).
- Þekkja lykilhugtök í viðbótarsölu og tengja við eigin störf.
- Skilja af hverju ráðgefandi sala eykur ánægju viðskiptavina.
- Styrkja liðsheildina, fagmennsku og öryggi í samskiptum.
Panta námskeið eða fá nánari upplýsingar: gerumbetur@gerumbetur.is eða 8998264
Hótel Klettur segir hér frá reynslu sinni af þjálfun frá Gerum betur