Þjónustuupplifun byggir á lykilþáttum sem útskýrðir eru á námskeiðinu og hvernig hver og einn þeirra hefur áhrif á ánægju viðskiptavina (customer journey). Rýnt í hvernig nota má fyrirfram mótaðan gátlista yfir mikilvæga þætti í þjónustu við viðskiptavini til að starfsfólk átti sig betur á “litlu” atriðunum sem vega þungt í þjónustugæðum. Unnið er með tillögur þátttakanda um hvernig þeir geta tekið aukaskrefið sem fer fram úr væntingum og tileinkað sér jákvætt hugarfar. Fyrirlestrar eru stuttir, áhersla er lögð á gagnvirkar umræður, sýnd myndbönd um þjónustusamskipti og fjölbreyttar skapandi aðferðir til að virkja þátttakendur.
Markmið:
• Tengja fimm grunnþætti þjónustugæða við dagleg störf.
• Meta eigin þjónustuupplifun.
• Skynja lykilhlutverk starfsfólks í að tryggja ánægju viðskiptavina
• Styrkja liðsheildina, öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Panta námskeið eða fá nánari upplýsingar: gerumbetur@gerumbetur.is eða 8998264
Hótel Klettur segir hér frá reynslu sinni af þjálfun frá Gerum betur
Umsagnir HÉR