Samskipta- og þjónustunámskeið fyrir vinnustaði
Gerum betur býður þjónustunámskeið, samskiptanámskeið og námskeið í menningarlæsi fyrir vinnustaði um allt land. Námskeiðin fara fram á vinnustaðnum eða í fjarfundi á íslensku eða ensku og eru styrkhæf hjá flestum starfsmenntasjóðum.
Hvað viljið þið styrkja?
Dæmi um fjögur vinsæl námskeið sem við sérsníðum að ykkar óskum. Öll eru styrkhæf hjá Áttinni og flestum starfsmenntasjóðum.
Þjónustunámskeið
Þjálfið fimm lykilþætti þjónustugæða og fagleg samskipti sem skapa traust í daglegu starfi.
Hrós og endurgjöf
Æfið einlægt hrós og uppbyggilega endurgjöf sem styrkja samskipti og menningu á vinnustað.
Erfiðir viðskiptavinir
Lærið að mæta reiðum viðskiptavinum, leysa kvartanir og setja skýr mörk á yfirvegaðan hátt.
Fjölmenning og menningarlæsi
Eflið menningarnæmni og byggið brýr milli fólks með ólíkan bakgrunn í vinnunni.
Hrósvinnustofa: Það sem fær hrós vex
Umfjöllun í Vísi, Morgunblaðinu og Mannlega þættinum á Rás 1
Hagnýt vinnustofa fyrir stjórnendur og teymi sem vilja gera gott framlag sýnilegt og styrkja daglega endurgjöf.
Við æfum skýrt og einlægt hrós með dæmum úr ykkar starfi. Hrósspilastokkur fylgir og verður eftir hjá ykkur.
Haldið hrósinu lifandi á fundum og vöktum: Dragið eitt spil, ræðið það og prófið eina hugmynd.
1–4 klukkustundir · Á íslensku eða ensku · Aðlagað að ykkar teymi

Af hverju Gerum betur?
Námskeið frá árinu 2002 hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum
Yfir 20 ára reynsla af þjónustu- og samskiptaþjálfun. Æfingar byggðar á raunverulegum aðstæðum úr íslensku atvinnulífi og eigin þjálfunarefni sem starfsfólk getur gripið til eftir námskeiðið.

Árangur sem hefur verið mældur
Fræðslugreining, -áætlun og þjálfun hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu í samstarfi við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar árin 2020 og 2025.
+30%
Fleiri hrós
-30%
Færri kvartanir
-15%
Minni starfsmannavelta
Námskeiðið styrkti hópinn, dýpkaði samskipti og skapaði jákvæða þjónustumenningu. Framúrskarandi hæfni til að virkja hópinn – mæli eindregið með!
Kristín Ýr Pálmadóttir
framkvæmdastjóri, Afltak
Fræðandi, skemmtilegt og hagnýtt. Náði strax tengingu við hópinn og allir virkjaðir með umræðum og verkefnum. 3 tímar liðu eins og augnablik. Mælum heilshugar með Margréti.
Þórunn Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Hlýja tannlæknastofa
Bæði fræðandi og skemmtilegt. Það náðist upp góð þátttaka og umræða innan hópsins. Þessi 25 manna hópur fagfólks fann sig sterkari sem samstarfsfélaga eftir námskeiðið og fékk verkfæri til að takast á við erfið samskipti.
Lárus Elíasson, leiðtogi MosVeitur